Við reynum alltaf að vera með eitthvað af töskum, festum og öðru handverki frá handverkshópunum í Dzaleka. Það er dýrt að láta senda það og við notum tækifærið þegar eitthvert okkar er á ferðinni, að taka eitthvað með okkur til baka.

Verðinu er mjög stillt í hóf – en þeir peningar sem fást fyrir söluna fara beint til kvennanna í Dzaleka.

Þótt það séu ekki háar fjárhæðir á okkar mælikvarða sem hver taska eða festi er seld á, getur það ráðið úrslitum í lífi kvennanna og fjölskyldna þeirra.

Til að fá að skoða það sem til er og kaupa – er hægt að senda tölvupóst á umoja@umoja.is. Að neðan eru nokkur sýnishorn.