Chief Kachindamoto er heillandi persónuleiki. Hún er ekki bara héraðshöfðingi, heldur líka höfðingi heim að sækja. Hún hefur haft forgöngu um að brjóta upp hundruð barnahjónabanda og að koma börnunum aftur í skóla. Þetta hefur kostað mikla vinnu og það þarf mikinn sannfæringarkraft til að koma slíku til leiðar, því það er verið að brjóta aftur aldagamlar hefðir sem eiga djúpar rætur í samfélagsgerðinni og trúarbrögðunum.

Félagar í UMOJA á Íslandi hafa nokkrum sinnum heimsótt Chief Kachindamoto, kynnt sér starf hennar og lagt á ráðin um samstarf.

Hér eru nokkrar myndir úr þessum heimsóknum.