Umoja á Íslandi hefur stutt við starf kvennanna í flóttamannabúðunum í Dzaleka með margvíslegum hætti. Við höfum m.a. selt varninginn þeirra hér á landi, töskur, hálsfestar, létta netpoka sem koma sér vel þegar keypt er grænmeti og ávextir og sitthvað fleira.

Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á umoja@umoja.is og fá að skoða varninginn og til að kaupa.

Allur ágóði af þessari sölu fer beint til kvennanna í Dzaleka.